Starfsemi
Helsta markmið UAK er stuðla að jafnrétti, hugarfarsbreytingu og framþróun í samfélaginu. UAK leitast við að skapa vettvang fyrir konur til að fræðast og efla hvor aðra. Því fylgir ómetanlegt tengslanet milli kvenna sem stefna að sams konar markmiðum á hinum ýmsu sviðum. Með viðburðum sínum vill UAK hjálpa félagskonum að auka styrkleika sína, þróa hæfileika sína og er markmiðið með hverjum viðburði að fylla þátttakendur eldmóði, sama hvort um sé að ræða námskeið, fyrirtækjaheimsóknir eða fræðslufundi.